Berserkir ehf var stofnað árið 2002 og hefur frá upphafi sérhæft sig í niðurrifi, steypusögun og kjarnaborum. Við leggjum áherslu á öryggi, gæði og umhverfisvænar vinnuaðferðir í öllum okkar verkefnum.
Starfsmenn okkar hafa verið kjarni fyrirtækisins frá upphafi, með mikla reynslu og þekkingu sem tryggir framúrskarandi þjónustu fyrir viðskiptavini okkar.
Yfir 20 ára reynsla í niðurrifi og steypusögun. Lykilstarfsmenn frá upphafi með mikla þekkingu.
Öryggi starfsmanna og umhverfis er forgangsmál. Sérstök þjálfun og bestu staðlar í öllum verkefnum.
Samstarf við Íslenska Gámafélagið frá upphafi. Úrgangur í réttan og umhverfisvænan farveg.
Vönduð vinnubrögð og nákvæmni í öllum verkefnum. Frá litlum heimilisverkefnum til stórra iðnaðarverkefna.
"Hveim er sér góðan getur. En orðstír. Deyr aldregi."
Góð þjónusta skapar gott orðspor sem lifir að eilífu.
Frá stofnun árið 2002 höfum við vaxið frá hellulögnum yfir í sérhæfða þjónustu í niðurrifi, steypusögun og kjarnaborum. Hér er saga okkar.
Félagið stofnað 11. september. Starfsemin byrjaði með hellulögnum en fljótlega varð til sérhæfing í steypusögun og kjarnaborum.
Breytingar á Hótel Esju í Hilton - fyrsta stóra verkefnið sem lagði grunninn að framtíðinni.
Gott og fast samstarf frá upphafi til að koma úrgangi í réttan og umhverfisvænan farveg.
Mikill vöxtur fyrir hrun. Starfsmenn orðnir fjörtíu og fyrirtækið í fullum blóma.
Ákveðið að taka að sér valin og sérhæfð verkefni. Þessi ákvörðun hefur reynst mjög vel.
Íslenska Gámafélagið fjárfesti í tækjum til niðurrifs. Félögin sameinuð undir nafninu Berserkir ehf.