starfsemi

Sérhæfð þjónusta í niðurrifi og steypusögun

Starfsemi Berserkja
OKKAR ÞJÓNUSTA

Starfsemi Berserkja

Við bjóðum upp á fjölbreytta og sérhæfða þjónustu í niðurrifi, steypusögun, kjarnaborum og vinnu með asbest. Allt frá litlum heimilisverkefnum til stórra iðnaðarverkefna.

Steinsteypusögun

Steinsteypusögun

Við sérhæfum okkur í steinsteypusögun og getum tekist á við verkefni sem krefjast nákvæmni og yfirgripsmikillar þekkingar. Hvort sem það er fyrir heimili eða stærri iðnaðarverkefni skiljum við rýmið þitt eftir tilbúið fyrir næsta skref!

Niðurrif

Niðurrif

Þegar kemur að því að rífa niður þá getur þú treyst á Berserki í verkið. Við tökum að okkur verkefni af öllum stærðargráðum, mætum með læti og klárum verkið með vönduðum og snöggum vinnubrögðum.

Vinna með asbest

Vinna með asbest

Asbest er steinefni sem þarf sérstaka aðgæslu við að fjarlægja. Öryggi er í fyrirrúmi þegar kemur að fjarlægingu asbests og við fylgjum ströngustu stöðlum til að tryggja að allt efni sé fjarlægt á öruggan og skilvirkan hátt. Starfsfólk okkar er sérþjálfað í að takast á við þessi verkefni með virðingu fyrir umhverfinu og reglugerðum.

Múrbrot

Múrbrot

Þegar kemur að múrbroti leggjum við mikla áherslu á öryggi og fagmennsku. Berserkir eru mennirnir í verkið, það er ekki spurning!

Kjarnaborun

Kjarnaborun

Berserkir leggja mikla áherslu á snyrtimennsku og vönduð vinnubrögð þegar kemur að kjarnaborun. Við vinnum hratt og skilvirkt með lágmarks raski á umhverfinu.